kjellingin er bara heima á föstudagskvöldi með vídeóspólu!!! reyndar var planið að kíkja á kaffihús með ragnheiði beibí en planið klikkaði sökum mígrenis (you have my full sympothy baby...)
annars fórum við í smá road trip í skólanum í dag og skruppum til grindavíkur, aldrei komið þangað áður... maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt... hehe ;) annars fórum við nú ekki til að skoða grindavík heldur hálendið þar fyrir ofan en við höfum verið að hanna nýjan veg þar í vegagerðatímum... mjög sniðugt að skoða þetta svona í real life en djöfull var kalt... ég er enn með hroll þrátt fyrir marga kaffibolla.....
en jæja... best að skella Chicago í tækið, spurning hvort ég fíla hana eða ekki... aldrei verið mikið fyrir söngleiki en ef ég alveg að æla yfir henni þá lánaði bubbi mér dvd með Bill Hicks...
síðan er planið að vakna á þokkalegum tíma á morgun og skella mér í bæjarferð með ragnheiði... þyrfti svo endilega að þrífa bílinn minn ef ég verð í stuði, krómuðu álfelgurnar mínar líta ekki út fyrir að vera svo krómaðar lengur :/
jæja... þá er þessi fína síða komin í gang... hin var orðin alveg hopeless enda búin að vera eins síðan ég byrjaði á þessu bloggsystemi fyrir meira en tveimur árum síðan... býst við að ég verði mjög dugleg að blogga from now on... lægðin búin.... og fullt af leiðinlegum tímum þessa önnina :Þ
en já þetta er búið að vera ansi stór lægð... skrítið að vera allt í einu orðinn single eftir 4 & 1/2 árs samband og búa ein... tekur engan smá tíma að venjast svona stórum breytingum og var ég alveg komin á botninn á tímabili... en hey... life goes on & þegar maður er kominn á botninn er bara ein leið.. UPP :)...
íbúðin mín er orðið voða voða fín og heimilisleg en fyrst eftir breakup var hún virkilega virkilega mínímalísk greyið... vala matt hefði örugglega fílað hana í tætlur, sjónvarp á stofugólfinu og málaratrönur í einu horninu... gasalega lekkert... sem betur fer átti ég meirihlutann af eldhúsdótinu og núna smátt og smátt hefur með tekist með hjálp yndislegs fólks að safna saman ýmsu, búin að fá gardínur í stofuna, sófaborð og nú síðast í fyrradag fékk ég tvo svaka kósý sófa.... eina mikilvæga sem er eftir, eru gardínur í svefnherbergið (komin með soldið leið á fréttablaðinu þar) og svo eitthvað smotterí sem kemur með tímanum...
en jæja... nóg í bili... er að fara að hitta gerði beibí og skoða nýja nemendafélagsskírteinið sem hún var að hanna fyrir okkur.... erum að fá fyrstu prufur úr prentun og vonum að það lúkki vel ;)
gamla síðan er dauð!!!!! þessi mun koma í staðinn fyrir hana og ekki veitir af að fara að tjá sig aðeins aftur á netinu enda ýmislegt gerst frá síðustu skriftum.....