shit... ég er ennþá þunn enda drakk ég aðeins of mikið í gærkvöldi og eins og svo oft upp á síðkastið var mér bent á mynd af mér á einni af djammsíðum borgarinnar (voðalega virka ég lítil við hliðina á gæjunum).... en það var allavega þrusustuð og þakka ég ragnheiði elsku kærlega fyrir að leyfa mér að krassa í nótt...
þrátt fyrir mikla þynnku var ótrúlega miklu áorkað í dag... fann þessa fínu rauðu flauels dragt í sautján og magnaðan topp í oasis. lét taka þetta allt saman frá og næst á dagskránni er því að finna einhvern til að gefa mér eitthvað af þessu (eða e-n part af því) í ammælisgjöf.... síðan náðum ég og bubbi að koma ótrúlega miklu saman fyrir umsóknina okkar fyrir nýsköpunarsjóðinn... að lokum komu svo gellurnar hrund, viktoría & lísa í vídeókvöld hingað í sveitina. leigðum við The League of Extraordinary Gentlemen sem mér fannst nú bara svona lala... tæknibrellurnar voru frekar lélegar enda er maður orðinn allt of góðu vanur eftir LOTR... held að það sé líka sniðugara að taka heilalausa skemmtun þegar svona tjellingar hittast þar sem við tölum yfirleitt allt of mikið.. hehe.... verst að Down with Love var ekki inni.... hún verður þá bara að bíða betri tíma....
hafði svo hugsað mér að vera massa dugleg að læra á morgun enda á ég að skila jarðtækniverkefni á mánudaginn og einhverju killer steypuverkefni á þriðjudaginn....
bytheway... djöfulsins snilld er að skjár1 er byrjaður að sýna bíómyndir... núna er einmitt snilldarræman Kingpin á skjánum... jíhhaaaa....
held ég hætti bara alveg að tjá mig um það hvenær ég ætla að mæta... mætti s.s. ekki alveg á réttum tíma í dag frekar en aðra daga vikunnar og er orðin soldið þreytt á því að sofa í ca. 11 tíma hverja nóttu sem er nottla engan veginn eðlilegt fyrir manneskju á mínum aldri.... nú verður því farið í aðgerðir... taka vítamín og prufa að láta tappa af mér blóði á næstunni....!!!!!
annars er fullt sem ég þarf að gera í dag & því best að drífa í því þar sem það er síðan vísindaferð á eftir í Vegagerðina.. bíst við að ég verði bara bílandi nema einhver sem ég þekki sem býr nálægt bænum leyfi mér að krassa í nótt *blikk, blikk*
aldrei að vita nema ég nái að mæta á réttum tíma í skólann á morgun þar sem fyrsti tíminn er víst ekki fyrr en klukkan 11.. múhhaaaa.....
miðilfundurinn í gær gekk nú ekki alveg nógu vel þar sem hún var ekki alveg í stuði... en hún sagði allavega að ég væri voða bright... & yrði örugglega rík ef ég héldi rétt á spilunum.... jíhhhaaaa.....
talandi um peninga þá fórum ég og hrund áðan og sóttum um vinnu í smárabíó.. væri svaka stuð og þá fengi maður alltaf frítt í bíó... en leist nú ekki alveg jafn vel á launatöluna sem hún nefndi :/ hmmm... (fyrir ekki svo löngu síðan þá hefði ég aldrei þorað að spyrja um launin.. merkilegt hvað maður þroskast á stuttum tíma)... en já, konan sagði að það yrði örugglega hringt í okkur bráðlega því það væru einhverjar að hætta og svona.. svo það er spurning hvort ég finni eitthvað annað í millitíðinni eða hvað... tjékka kannski á ljósastofu eða einhverju öðru heilalausu starfi... ekki það að mér líki ekki vel í B&L vinnunni minni.. hún er voða fín.. en ekki mikið að gera þar á kvöldin þegar ég hef helst tíma.....
en jæja.. einn CSI og svo svefn.. er ekki alveg orðin þreytt ennþá þar sem ég fór ekki alveg nógu snemma á fætur í morgun.... daddara....
er að leiðinni á minn fyrsta miðilsfund á eftir... reyndar er ég nú hálfgert tilraunadýr en það er bara gaman... hef nú farið tvisvar á svona fjöldafundi en aldrei bara svona ein.... daddara... more info um það síðar...
er búin að vera voða dugleg í dag við allt annað en lærdóm.. hehe... lagaði síðuna hennar önnu málfríðar, breytti lúkkinu á verzlógellublogginu... fór á tvo fundi og allt að gerast... hlakka eiginlega bara til þegar þessi blessaða árshátíð er búin.. en shit.. það er bara vika í hana og ég er hvorki búin að finna dress né semja ræðu :/
held ég sé nú búin að redda svona flestu sem reddað verður í töskumálum.... búin að sækja um ný kort (reyndar ekki ökuskírteini en það verður að bíða peningaglaðari tíma), búin að láta skipta um skrá hérna hjá mér, lykillinn að bílnum verður kódaður upp á nýtt á fimmtudaginn, búin að setja símann í trökkun hjá ogvodafone & hjá símanum, búin að tala við tryggingarnar sem bæta auðvitað ekkert svona :( og já... búin að tala við óskilamundadeild löggunar... all in orden.....
en já... sótti nýja lykilinn minn hjá húsverðinum áðan og það er merkilegt hvað maður þekkir fáa hér í þessu húsi... kannski af því að ég er aldrei heima... hmmm... en ég held að ég geti bara hætt að downloada þar sem maðurinn á snilldarsafn af bíómyndum og þáttum... fékk lánaða "nokkra" þætti hjá honum og ætla bara að missa mig í CSI á næstunni... jíhhhaaa..... nenni ekki að láta stjórnast af sjónvarpsdagskránni enda yfirleitt þegar ég kveiki á tækinu þá er bara dr. phil & píkupopp á skjánum :Þ
en nú er það víst nýjasti friends og svo svefn..... er búin að missa aðra vekjaraklukkuna mína (ekkert solleiðis á þessum blessaða motorola) og því ennþá erfiðara að vakna.. mátti sko ekki við því....
damn hvað þetta er súrt... en ég verð víst bara að vona það besta þó útlitið sé ekki gott... lokaði allavega kortunum strax og tilkynnti þetta til löggunar... fór svo í ogvodafone í dag og fékk nýtt simkort.... sem betur fer var ég ennþá með motorola símann hans bróður míns í láni... var símalaus í alveg 12 tíma og var alveg að klepra.... :/ annars er bara eina sem ég get gert núna er að fara með serialnúmerið á símanum niðrí ogvodofone á morgun, cross my fingers & vona að þeir geti rakið hann... annars er alveg fyrsta mál á dagskrá í fyrramálið að hringja í BN og fá þá til að láta skipta um skrár hjá mér... líður ekkert sérstaklega vel yfir því að eitthvað kríp gæti verið með lykla af íbúðinni minni & bílnum mínum þar að auki....
kíkti aðeins í bæinn í kvöld með óla bróðir ragnheiðar.. var bara á bíl og allesammen og einhvern tímann þegar ég var í góðum fíling inn á felix og leit af töskunni minni í smá stund... þá var eitthvað fífl sem stal henni!!!!!! auðvitað var ég nottla með allt í töskunni.. kortin, símann, húslykla.. og já, bíllykla... endaði á því að vekja greyið ragnheiði & svo greyið múttu... tékkaði á felix eftir lokun.. en neibbs... engin taska þar..... þurfti að taka ansi stóran rúnt til að redda aukabíllyklunum mínum... seltjarnarnes - hafnarfjörður - grafarholt - miðbær..... shit hvað ég er pissed..... og vá hvað ég er orðin þurr í augunum þar sem ég var meira að segja með gleraugun í töskunni!!!!!!!
ætlaði að vera löngu farin að sofa... en þetta vill gerast þegar maður kveikir á tölvunni þegar maður kemur heim
note to self: ekki kveikja á tölvunni næst þegar þú kemur svona seint heim....
anyways... þá lifði ég nú af gærdaginn... eldaði meira að segja fyrir mömmu & vinkonu hennar og ætlaði svo að kíkja aðeins á bráðavaktina áður en ég færi heim... í staðinn "dottaði" ég í sófanum hjá múttu í ca. tvo tíma en svaf svo ofsalega vel í nótt...
ég & hrund pæja kíktum á hverfiz áðan, sjonni & jói voru að spila, alltaf gott að kíkja aðeins út á fimmtudögum og fá sér einn bjór eða svo..... hita sig upp fyrir helgina.. hehe... annars held ég að þetta verði nú bara ósköp róleg helgi, allavega ekkert djamm planað enn....
en well, ætli það sé ekki best að skella sér í háttinn.. verð að vera vöknuð fyrir átta á morgun þar sem ég er að fara á steinsteypudaginn.... nokkrir áhugaverðir fyrirlestrar þar og ég ætla sko ekki að verða þessi sem dottar í miðjum fyrirlestri :/
já, by the way.. var bæta tigernum hérna inn í tenglana hjá mér... drengurinn er víst nýbyrjaður að blogga & byrjar bara hörkuvel...
ja.. ég skrapp ekkert heim... vorum tvö sem höfðum þetta af, reyndar lögðum við okkur aðeins hérna í sófanum frammi en við erum bæði enn á lífi... barely reyndar... :/ bullan er samt alveg að verða búin og þreytan virkilega tekin við.... verð samt að lifa fram yfir fundinn og svo verður sko farið heim og sofið.... (týpískt að ég verði svo ekkert þreytt þá)... miðað við ástandið núna þá hef ég aldrei hlakkað jafn mikið til að fara að sofa á ævinni....
en jæja... þá er ég komin með þrjár aðferðir til að mæta á réttum tíma í skólann:
1. gista hjá múttu
2. fá hrund til að gista hjá mér
3. fara barasta ekkert heim
þessar aðferðir hafa allar svínvirkað en ég verð eiginlega að fara að uppgötva leið til að mæta á réttum tíma án þeirra... er nú komin með nokkra punkta.. td. fara fyrr að sofa.....
jæja... klukkan bara að verða sex og finally er ég búin að skila verkefninu sem skila á fyrir klukkan átta... talandi um að vera á síðustu stundu.. hehe... en það er ekki eins og ég sé ein hérna (jamms.. ég er upp í skóla...) heldur erum við fimm hérna ennþá og erum seriously að pæla í að sleppa því bara að fara heim, lifa fram á hádegi á morgun og svo heim að zzzzzz.... ég nebbla þori ekki að fara heim að sofa þar sem það er fundur með rektor & co. í hádeginu og ég bara treysti ekki sjálfri mér til að fara heim að sofa núna og vakna fyrir hádegi... kannski ég skreppi allavega heim... sjáum til...
minni datt í hug að nú væri gott að mæta á réttum tíma, byrja vikuna vel og svona... en nei... ég mæti hérna og þá er bara hlegið af manni, afhverju?? nú vegna þess að kennarinn gaf frí (sem enginn vissi af fyrirfram) og auðvitað datt engum í hug að láta mig vita þar sem ég er nú ekkert sérstaklega vön að mæta í fyrstu tvo tímana... :/
andri beibí á ammæli í dag.. vei vei & innilega til hamingju... bráðum verð ég jafngömul og þú.. hehe... þökk sé ammælisbarni dagsins þá er myndasíðan mín orðin svaka fín og já, svo var ég að henda inn myndum frá poolmótinu.. verði ykkur að góðu...
held ég sé liggur við ennþá þunn.... :Þ gerði ekkert rosalega góða hluti í poolinu á fimmtudaginn... vann einn leik af þremur og komst þar af leiðandi ekki áfram í næstu umferð... því varð maður bara að vera duglegur í einhverju öðru, þe. bjórdrykkju c";) eftir nokkuð marga bjóra kláraðist svo mótið og þá var haldið í partý, nánar tiltekið hommapartý.. hehe... skemmtilega súrealískt kvöld en skemmti mér nokkuð vel bara... (myndir eru væntanlegar)
nú er víst kominn laugardagur, gærkvöldið var bara mjög rólegt... gerður pæja kom í heimsókn og ég held að okkur hafi nú svona þokkalega tekist að koma með ágætis hugmyndir að auglýsingu fyrir árshátíðina okkar....
annars var ég rétt í þessu að koma af "ættarmóti"... þessi ætt hans pabba hefur alltaf verið svo rosalega ódugleg að hittast og nú var ákveðið að gera eitthvað í því... var td. að hitta einn í fyrsta skipti en samt voru pabbi minn og mamma hans systkini...
en jæja, nú er það víst vegagerðin... lokaprófið er á mánudaginn og eftir það verð ég búin á eðlilegum tíma í skólanum... veivei... ætla að reyna að vera voða dugleg núna svo ég geti kannski farið í bíó eða á kaffihús í kvöld... (sniðugt að djamma svona á fimmtudegi og þá er maður búinn að losna við djammþörf helgarinnar... hehe)
í kvöld er poolmót technis... auðvitað tekur mín þátt en býst þó ekki við því að ég sýni neina yfirburða takta... held að leikirnir sem ég og árni áttum út í búdapest verði seint toppaðir... hehe... man reyndar ekki eftir helmingnum af þeim... hmmm....
enn sem komið er þá er ég víst eina stelpan sem hefur skráð sig í mótið... surprise surprise...
er í 70 mínútum as we speak og vááá hvað hún er crazy..... þeir eru virkilega að reyna að blanda handa henni ógeðisdrykk og gengur frekar illa þar sem hún er annaðhvort með "ofnæmi" fyrir hlutunum sem þeir ætluðu að setja í eða þá að þeir gætu verið eitraðir eins og td. sinnepið sem var ekki í lokuðum umbúðum...
fyndið, við vorum einmitt að ræða hana í dag og hennar frábæra lag, viktor, sem ég hef ekki heyrt allt of lengi.. hehe
vildi bara svona láta vita að ég væri mætt í skólann og það er meira að segja næstum klukkutími síðan... já, ótrúlegt en satt þá var ég mætt áður en tími hófst!! hef ekki verið alveg nógu dugleg að vakna snemma undanfarið... enda mættu mér undrunaraugu hér í bekknum... og meira að segja var ég spurð að því hvort ég væri ekki enn farin að sofa c";)
...en vonandi er bara ný & endurbætt erla tekin við....
var bara nokkuð þétt, sérstaklega miðað við þá síðustu c";)
á föstudaginn var skellt sér í vísindaferð í límtré og er ég einmitt búin að skella inn myndum hér á myndasíðuna... þetta var hin fínasta vísindaferð og vorum við nokkur sem skelltum okkur í bæinn... það var einmitt byrjað á nelly's, þar sem staðurinn á víst 9 ára afmæli (shit hvað ég er orðin gömul) það var allt fullt af helíumblöðrum sem við urðum nú að ráðast á... hehe... og svo voru nú einhverjir sem skelltu sér í karokee... eftir þetta var nú kíkt á hverfiz, surprise surprise.... en þar hitti ég einmitt andra, ómar & huldu og svo heppilega vildi til að hún hulda var einmitt bara akandi (en hún býr í blokkinni minni)... því elti ég þau á vegamót og síðan fórum ég og hulda bara þokkalega snemma heim með smá viðkomu á bsí & tókst mér að sofna í sófanum þegar ég kom heim og það var bara ekki svo slæmt…
á laugardaginn var ég ótrúlega öflug en ég og ragnheiður skelltum okkur upp í vinnu og nýttum okkur aðstöðuna á verkstæðinu og bónuðum bílana okkar í hel!!! þetta var einmitt í fyrsta skipti sem ég bóna bíl... verst það var ekki nógu mikið af karlmönnum á svæðinu til að blikka og nota ljósa hárið á... hehe... en litli frændi hennar ragnheiðar kom nú með og aðstoðaði okkur.... annars er ég nú soldið stolt af að hafa gert þetta sjálf & var ég næstum búin að gleyma hvað bíllinn minn er flottur svona shiny... hann var orðinn svo ógeðslega skítugur greyið....
um kvöldið kom svo hrund gella til mín... við byrjuðum á því að gæða okkur á dominos pizzu, horfðum svo á svínasúpuna og ég kynnti hrund fyrir þeim snilldarþætti "gætt'að því hvað þú gerir maður".... eftir einhverja bjóra komu svo nokkrar gellur til okkar og nokkrum drykkjum síðar var svo skellt sér á hverfiz (mínus ein sem svaf vært á sófanum á meðan) og dansað til lokunar.... síðan var haldið í sleepover hér á kristnibrautinni en það var sofið á báðum sófum og ég & hrund deildum rúminu saman.. og já, auðvitað var nú farið í koddaslag áður en við lognuðumst útaf c";)
í gær ætlaði ég svo að vera obboðslega dugleg að læra en ég á víst að skila steinsteypuverkefni á morgun :/ ég byrjaði auðvitað daginn á því að taka til, soldið subbulegt eftir okkur gellurnar og tjékkaði svo á excel hlutanum á þessu verkefni... alls ekki flókið en því miður er ég ekki búin að vera alveg nógu dugleg að fylgjast með í tímunum og þarf því að massa þetta núna eftir vegagerðartímann, hef fulla trú á að það takist... með smá hjálp ofcourse.... helgin var síðan slúttuð nokkuð vel, en ég, hrund, ríta & ragnheiður fórum á ítalíu að snæða… mmm…. ég er liggur við ennþá södd… og síðan var endað í chickflick stemmningu hjá rítu… alltaf gott að enda helgina á heilalausri bíómynd :)
ætlaði reyndar að gera eitthvað í þessu steinsteypudóti í eyðunni en í staðinn kíkti ég aðeins upp í vinnu, gaf henni elsku sollu kertastjaka sem ég málaði til að þakka henni almennilega fyrir sófaborðið sem ég fékk hjá henni og svo er krómlistinn aftan á bílnum mínum eitthvað gallaður, held að saltið hafi farið illa með hann greyið, en það er allavega búið að panta nýjan lista fyrir mig :)... og já úff…. síðan þarf víst að sortera eitthvað þessi blessuðu nemendaskírteini svo það sé nú hægt að dreifa þeim sem fyrst.... veit ekki alveg hvenær ég á að hafa tíma til þess í dag… en well, við sjáum til…
jæja kvöldið fór aðeins öðruvísi en það átti að fara en ég ætlaði að vera voða dugleg og ganga frá restinni af fötunum mínum inn í skáp en í staðinn ákvað ég að skella mér á stælinn með hrund & litla frænda hennar, redda mér excel bók eftir hinn eina sanna baldur sveinsson sem hún dagmar litla frænka (og magadansmær með meiru) var svo góð að lána mér og síðast en ekki síst þá er ég búin að vera að dunda mér í því að setja upp myndasíðu.. vei vei... útlitið á henni er nú ekki orðið alveg eins og það á að vera þar sem ég kann ekki nógu mikið á dreamwever (*blikk, blikk* andri...) og ekki eru nú komnar margar myndir inn ennþá en það rætist vonandi úr því eftir helgina c";)
hérna er sko litla sæta barnið mitt... ég er orðin alveg veik mig langar svo í hana... reyndar er þetta nú hann og ef hann verður minn þá mun hann sko heita pjakkur.. surprise, surprise...
eyddi annars öllum deginum í dag í þessari blessuðu prentsmiðju í kópavogi sem er að prenta fyrir okkur nemendafélagsskírteinin... ég og gerður eyddum nokkrum tímum þarna í síðustu viku og aðeins of löngum tíma áðan... þurftum að breyta hönnunni aftur og aftur og aftur þangað til þessi blessaða prentvél gat komið þessu almennilega út.....en núna er ég líka komin með fyrsta skírteinið í hendurnar.. vei vei og restin verður tilbúin á morgun... jibbidídú.....
jæja... ég, mútta & hrund skvísa fórum í rúmfatalagerinn í dag og fundum við þetta líka fína gardínuefni fyrir svefnherbergið... vei vei... mútta & vinkona hennar ætla svo að sauma gardínurnar annað kvöld og koma með þær til mín... þær eru svo góðar þessar elskur... þannig að þegar ég er búin að setja þær upp og ganga almennilega frá smá drasli og já hengja upp nokkrar myndir þá verður íbúðin mín orðin alveg eins og ég vil hafa hana... líður voða voða vel hérna en það versta er að leigan er kannski aðeins of mikil fyrir eina manneskju með allt of lítil námslán og engan tíma til að vinna :( en það þýðir nú ekki að hafa áhyggjur af öllu heldur bara sjá hvað gerist og yfirleitt reddast hlutirnir nú á endanum, hvort sem ég verð áfram hér eða hvað...
en anyways þá virðist næsta helgi ætla að vera öllu átakanlegri en sú síðasta djammlega séð þar sem það er vísindaferð á föstudaginn og svo er ég búin að bjóða gellunum í mat & djamm á laugardagskvöldið.... markmið vikunnar (fyrir utan það að vera dugleg að mæta á réttum tíma í skólann...) er því að reyna að ganga frá restinni að dótinu mínu svo pleisið verði ennþá huggulegra og þá get ég verið dugleg að djamma & læra um helgina... that's a good plan, batman c";)
jibbí.. fékk sæta dúllu símann minn aftur í dag, hann var að koma úr viðgerð greyið... þó hann sé ennþá í ábyrgð þá þyrfti ég nú að borga soldið þar sem "vatnsskemmdir" flokkast víst ekki undir ábyrgð... daddara... var með motorola síma í láni hjá bróður mínum á meðan.. hann virkaði fínt en það vantaði allt þetta skemmtilega eins og hringitónana mína, vekjaraklukku (mikil nauðsyn...) og svo var svo drulluerfitt að senda sms með honum...
en já... tókst næstum því að mæta á réttum tíma í morgun sem er mikil framför og þá er bara að gera enn betur í fyrramálið... held ég sé með smá skólaleiða í augnablikinu... allavega er ég alveg að klepra á sumum fögum og gengur ekkert með þetta blessaða jarðtækniverkefni sem ég á víst að skila á morgun... jarðtækni er ekki alveg mitt fag :Þ
ohhh... svo fór ég til ragnheiðar í hádeginu en kisan hennar var að eignast fjóra pinkulitla og sæta kettlinga... vá hvað mig langar í einn þeirra... enda er hann soldið beljulegur... hehe... þarf að kíkja betur á þá á morgun því þegar ég kom til hennar í dag þá voru þeir svo nýkomnir út að þeir voru enn blautir.. tók nú samt nokkrar myndir af þeim en tek fleiri og betri á morgun c";)
oh well... best að kíkja aðeins betur á jarðtæknina... think happy thoughts, think happy thoughts...
og ný vika að taka við... ég ætla að reyna að vera voða voða dugleg að mæta á réttum tíma þessa vikuna en það hefur ekki gengið sem skyldi undanfarið.... ótrúlega erfitt að vakna þegar það er enginn til að draga mann á fætur :/
annars var þetta ósköp róleg helgi djammlega séð og kannski eins gott þar sem ég er búin að djamma aðeins of mikið the last couple of weeks... var góð systir og hleypti jóni þór & ernu í bíó á föstudaginn og var síðan hjá gunna & gerði á laugardagskvöldið meðan þau skelltu sér í fertugsammæli.. reyndar voru þau komin ótrúlega snemma heim og því kíktum ég & ragnheiður aðeins á brennsluna.. nauðsynlegt að fá sér smá bjór.... en þetta var nú ekki það eina sem ég gerði með ragnheiði þessa helgina... við skelltum okkur í linsumátun & kolaportið á laugardaginn, keypti mér svaka fínar grænar linsur.. algjör pæja og svo er alltaf skylda að kaupa sér smá nammi í kolaportinu, froskarnir svíkja engan.. mmm... og ég keypti mér líka þrjár videóspólu (ódýrara en að leigja...) Gattaca, October Sky & Swordfish. Í dag skelltum við gellurnar okkur svo í rúmfó þar sem markmiðið var að finna gardínuefni fyrir svefnherbergið hjá mér en í staðinn tókst mér nú að verzla ýmislegt annað.. keypti sæta blómaseríu í gardínulausa stofugluggann, svaka fínar pullur á eldhússtólana & litla mottu fyrir framan svalahurðina.... svefnherbergisgardínum verður síðan vonandi reddað í vikunni ;)
að lokum til að toppa helgina eldaði ragnheiður fyrir okkur kjötsúpu og á hún stórt hrós skilið þar sem hún er eina tuttugu&fjögurra ára manneskjan sem ég þekki sem kann að elda kjötsúpu...
en ætli það sé nú ekki að best að fara að skella sér í háttinn svo ég klúðri ekki markmiði vikunnar strax... ætlaði víst að vera sofnuð fyrir rúmum hálftíma síðan... daddara.... c";)