já nei það er víst miðvikudagur.. but it feels like monday to me!! en játs.... peaches tónleikarnir í gær voru snilld... plöntuðum okkur upp við vegg hægra megin við sviðið og sá nottla ekki baun en rétt áður en gellan steig á svið datt mér það snilldarráð í hug að stíga upp á ruslatunnuna við hliðina á mér... (bara svona lítil járntunna sko) og var bara upp á henni allan tímann og sá brilliant... snilldargella.... og bubbi duglegur að kynna manni fyrir nýrri tónlist.....
en best að rífa mánudaginn úr sér.. skella sér í ljós og heita pottinn með ragnheiði og er svo búin að panta videó með fótanuddi hjá heiðu í kvöld... er enn frekar ónýt í löppunum eftir að hafa staðið á tunnu í tvo tíma... daddara... !!!
vá hvað ég geispaði í dag..... helgin greinilega enn að taka sinn toll... ekki bætti úr skák að það var mjööög rólegt í vinnunni og þá verður maður enn þreyttari.... en já... verður örugglega meira stuð á morgun... svo er mín bara að fara á tónleika annað kvöld.. vei vei vei.. ekki búin að vera nógu dugleg í tónleikunum skhhhhh.... en já annað kvöld á að skella sér á Peaches... bubbi alltaf duglegur að kynna mann fyrir góðri tónlist... flott rokkkvendi þarna á ferð.... ;) en meira um það eftir giggið.... er svo loks búin að henda myndunum úr símanum mínum inn á tölvuna... ætla að reyna að vera duglegari að setja myndir inn á síðuna.... en já.. fer að koma matur... erum að sjóða fisk og kartöflur gellurnar... haldiði að það sé ekki heimilislegt hér á melrose... hehehe
jæja... það var sko tekið vel á því um helgina....!!! útlendingadjamm á föstudaginn með einhverju golf liði.. vantaði tjellingar og tókum við gellurnar að okkur að skemmta nokkrum ameríkönum.. ekki slæmt að fara á barinn með þeim... hehe... þrusuhresst lið... vonaðist til að sjá CSI sæta gaurinn sem var víst hérna með þeim en hann var ekki á svæðinu á föstudagskvöldið.. en sá nú Shannon Elizabeth á glaumbar of all places.. hehe.. en já þetta var svona eins konar leikur.. áttum að fara á tíu staði, fá stimpil á öllum og þá gátum við skilað kortunum inn og unnið ferð eitthvað... en við náðum nú reyndar bara átta... hehe... en já... gríðarleg stemmning....
ennþá meira stuð var síðan í gærkvöldi þar sem ég hélt loks hið ógleymanlega innflutningspartý.. hehe... voru um 25 kvikindi hérna í heildina í öllum 55fm mínum ;) tókst ótrúlega vel allt saman.. bollan vakti mikla lukku... og það var ekki skellt sér í bæinn fyrr en um hálf fjögur leytið.. farið niðrí bæ var sko ekki af verri endanum þar sem tveir BMW gæjar (annar þeirra minn yndislegi litli frændi) voru á svæðinu.... sofnaði svo upp í rúmi rétt rúmlega sex.. ofan á sænginni... ennþá í öllum fötunum.. meira að segja jakkanum :/ missti þar með af rosalegri sundferð í morgun þrátt fyrir að vera ekki að gera neitt af viti!!! en já.. myndir eru væntanlegar á næstunni.. ómar kom með myndavél yfir og myndaði stuðið og brjálæðislega flotta sólarlagið.. himininn er búinn að vera geðveikur hérna undanfarna daga.... gott útsýni á melrose ;) en já.. hahaha.... endaði aftur með karlmannsskó í forstofunni og vaknaði við kaffibrunalykt þar sem gleymst hafði að slökkva á kaffivélinni í gærkvöldi :Z en ragnheiður mín á mikið hrós skilið fyrir tiltektina í gærkvöldi og svo aftur í dag... mússí mússí mússí... elduðum svo þennan dýrindiskjúkling... mmmmmm.... en well kominn tími á svefn.... löng vinnuvika framundan ;)
kom svoldið ótrúlega "skemmtilegt" fyrir á þriðjudaginn... var á leiðinni úr vinnunni og á leið niðrí bæ... gerði ég mér þá ekki lítið fyrir og keyrði aftan á tvær gamlar!!!!! en já.. það er nú ekki öll sagan.... var s.s. að koma hérna niður af brúnni í átt að miðbænum og var alveg að verða komin inn á aðalgötuna af aðreininni þegar druslan fyrir framan mig snarstoppar á miðri götunni og ég næ ekki að stoppa og bomba því á hana.. ekki sátt þrusast ég út úr bílnum og að þeim sem konan opnar hurðina og ég í ágætu sjokki og frekar ósátt "hvað ertu að gera"... gamla alveg í móki bendir á grasið og segir "fuuuuglaarnir" og ég bara "HA!!!"... "nú ég ætlaði ekki að keyra á fuglana" (those stupid bastards can fly!!!.. ekki eins og þetta hafi verið andamamma á leið yfir götuna með ungana og fuglarnir komnir lengst út á gras.. ) en well.. þær fara út úr bílnum og tjékka á stuðaranum sem var smá beyglaður og smá blettir þar sem lakkið hefur farið af... minn var ótrúlega lítið skemmdur... smá skakkur stuðarinn.. grillið brotið og númeraplatan í hakki sem virðist hafa bjargað málunum... þá segir konan "hvað eigum við að geeera?" og ég bara "bíddu, ég er örugglega með tjónaskýrslu í bílnum"... tók allt út úr hanskahólfinu og finn ekki neitt og lít upp... eru gömlu ekki bara að setjast upp í bílinn og keyra í burtu... aldrei lent í öðru eins.. ég alein út á götu eins og fáviti....!!!! náði númerinu hjá kvikindunum og hringdi beint í ragnheiði spæjara sem tjáði mér það að kjellingin væri fædd 1930 for crying out loud!!!! þær hafa örugglega ekki séð neitt á stuðaranum og voru örugglega skíthræddar við mig.. hehehe... sé fyrir mér sögurnar á elliheimilinu í dag "þetta unga fólk í dag... kann ekkert að keyra og er svo með dónaskap!!"... en já... druslan kostaði mig s.s. 10kall sem fer í nýtt grill og nýja númeraplötu.. vona svo að elskurnar upp í B&L nái nú að rétta hann aðeins til... en já... hefði getað farið ver þar sem ég hefði nánast pottþétt verið dæmd í órétti eins og yfirleitt með aftanákeyrslur....
mórall sögunnar: sendum fólk um sjötugt í ökutíma og próf eða tökum af því bílprófið og gefum þeim strætókort!!!!
snilldarveður.. ef þetta væri nú bara alltaf svona... en nei... eins og bubbi segir reglulega við mig þegar ég kvarta út af kulda "þú býrð á íslandi" yes I know... but still... anyways.. fór í mat til múttu og skelltum við okkur á tónleika í hafnarfjarðarkirkju þar sem margrét eir var að syngja... alltaf gaman að gera eitthvað öðruvísi...
hélt áfram að vera löt frameftir kvöldi í gær eða þangað til á miðnætti þegar mér datt nú loks í hug að raða baðdótinu mínu inn í skáp... good timing!! merkilegt hvað ég fæ alltaf sprautu upp í rassinn upp úr miðnætti... hmmm.. kannski ég ætti að skella nokkrum myndum upp á vegg núna og skella mér svo í háttinn... hehe... náði einmitt í nokkrar familíumyndir hjá múttu og eitthvað smá drasl.. er enn að reyna að tæma herbergið mitt smátt og smátt svo mútta geti nú notað það í eitthvað sniðugra en ruslageymsluna mína... daddara!
hmmm... ætlaði að vera voða dugleg í dag... en neiiiii.... horfði á formúluna og never again sko... mínir gæjar skíta bara upp á bak hægri vinstri!!! glápti svo á fótboltann, "uppáhaldsdómarinn" minn var líka að dæma... hehehe.. finnst snilld hvað maðurinn er líkur Herberti... kíkti svo aðeins á skjá einn og svona.... og daddara klukkan bara að verða 22.... damn.. finnst eins og það sé enn miður dagur... gerði þó nokkur línurit fyrir vinnuna but that's about it.... hef enn smá tíma til að vinna í því, kvöldið er nú ekki alveg búið ennþá.... annars er nú stundum alveg ágætt að vera smá latur ;)
fínasta helgi... skellti mér á laugarvatn á föstudaginn með stjórn BÍSN í svokallaða stefnumótunarferð. gistum þarna í íbúðum BN sem bísn leigir einmitt út í sumar og vill svo til að þessar íbúðir eru nánast eins og íbúðirnar hér á melrose fyrir utan ljóta appelsínugula dúkinn sem er þar... hehe... ég svaf meira að segja í íbúð 203 sem er alveg eins og mín gamla íbúð... frekar skrítið.. en já... það var tekið gott fundarsession.. svo var mikið borðað, drukkið, horft á boltann og tekin smá gítarstemmning.... komst að því að ég þarf mikið að herða mig í gítarlögunum fyrir þjóðhátíð.. tsss.... en fínt að vera á laugarvatni og frábært veður sem fengum...
kom svo í bæinn í gær, skelltum okkur í kringluna mægðurnar.. enda nýtt visa tímabil... hehehe.. annars var nú ekki mikið verslað en elsku besta mútta sá til þess að dóttir hennar verður vel lyktandi og gaf mér þetta líka fína armani ilmvatn... mmmmm.. síðan var ótrúlegt en satt EKKI farið á tjúttið í gær.... hehehe... tekið var rólegt videókvöld hér í 103 og horfðum við gellurnar á Win a date with Tad Hamilton!... og shiiiiit hvað gæjinn er flottur.... grrrrr.... ég er enn slefandi...!!!! já svo skellti ég í þrjár þvottavélar by the way... ótrúlega dugleg... magnaður árangur... hehehe... c";)
já það er víst 17.júní í dag og ekki rigning og skítaveður... hvað kemur til... en já... frekar erfiður morgunn... úff... fékk mér kannski aðeins of marga bjóra í gær..... held ég hafi ætlað að drekkja aumingjanum... daddara....reddaði þynnkunni svo með góðri sturtu og fór síðan í þennan líka fína familídinner á nesinu og er gjörsamlega að springa ég er svo södd... bróðir minn er snillingur á grillinu... þá er eina sem vantar núna er virkilega gott kaffi og er því málið að kíkja á hana ragnheiði mína og skella sér aðeins á kaffihús með gellunni & þar með skoða aðeins lífið í miðbænum c";)
ég er aumingi... kann ekki að vera aumingi og langar það ekki... verð bara eitthvað voða down stundum & engin sérstök ástæða fyrir því....urggg... en jæja.. búin að láta þetta frá mér og þar með er mínum fyrsta og síðasta sjálfsvorkunnarpistli lokið... kannski vantar mig bara knús..... hehehehehehe!!!!!
já er búin að vera að fikta aðeins í síðunni minni í dag... skipta um mynd, bakgrunn og header og bætti svo inn link á nýju bloggsíðuna hennar ernu en hún er einmitt með mér í saumó.... en já.. það er s.s allt of lítið að gera í vinnunni í dag :/
var búin að fórna einum gallabuxum í vinnuna þar sem þetta er nú soldið skítug vinna... svo á föstudaginn þegar ég er á heimleið og sest inn í bíl heyrist skemmtilegt riiip... hmmmm.. ég athuga málið og rifna þá ekki kvikindin alveg meðfram öðrum rassvasanum og vel það... hahaha... shit hvað ég var fegin að vera á heimleið.. ekkert stuð að vera í vinnunni með rassinn flæðandi út.. hmmm.. hefði kannski fengið athygli út á það.. hehehe c";)
jei jei.. er að fara að flytja í þriðja skiptið á ævinni og þó mun ég enn bara hafa búið í tveimur götum... fyrst var það af miðvangi yfir á miðvang.. svo flutti ég á kristnibrautina og núna verð ég enn á kristnibraut en flyt barasta í næstu íbúð og þauk yfir í mína... hahaha.. úr 203 í 204.... þetta verða vægast sagt stystu flutningar í sögunni... spurning með húsgagnaárekstur á ganginum... hehe.. en já... algjör snilld.. !!!
spurning hvort maður drífi þá ekki í því að halda innflutningspartý í sumar... varð víst aldrei af því síðast... alltaf hægt að finna góða ástæðu fyrir smá djammi ekki satt???
fór mín að sofa á skynsamlegum tíma.. komin í bólið fyrir eitt og vaknaði því hress og kát í morgun.. neeeeema.. maginn var ekki alveg sáttur... týpískt... alltaf gaman að vera á túr :/ en well.. hann var orðinn sáttur um hádegið og þá gátum ég og maginn farið að steypa c";) fór svo og verslaði shitloads í bónus áðan.. svo ég þurfi örugglega ekki að fara þangað aftur í viku eða svo...
planið í kvöld er svo BÍSN fundur og harry potter.. veivei... hlakka til að sjá hana.. fannst þetta pottþétt besta bókin... síðan var heiða elska að hringja og við erum að fara að grilla borgara.. mmmm.... L8er....
byrjaði á þvílíkum rólegheitunum á föstudagskvöldinu sem var eins gott þar sem laugardagurinn byrjaði á því að mæta í útskrift THÍ og hélt mína síðustu ræðu sem formaður... ekki var hún nú löng en ég var líka aðallega komin þarna til þess að afhenda þeim sem hafa verið í nemendafélaginu smá viðurkenningu... síðan tók ég smá létt þrif á bílnum... ótrúlega fljótur að verða skítugur þessi elska og svo var skundað í ammælisveislu hjá litlu 11 ára frænku minni.. eftir þetta var svo farið í þriðja outfit dagsins og skundað í útskriftarveislu hjá jóhanni sem býr í blokkinni hjá múttu og þaðan af í smá innflutning gettogether hjá rítu & hrund og í lokin var auðvitað skellt sér niðrí bæ sem var fullur af könum... en mikið dansað og þrusustuð.. enda varð ég víst að vinna upp föstudaginn.. hehehe... en vá borgaði líka fyrir það með þvílíkri þynnku í dag sem ég þurfti þó að enda seinnipartinn þar sem þá var annað barnaammæli hjá litla 3 ára frænda mínum... heiða sæta bauð mér síðan í grill til foreldra sinna í mosfellssveitinni... svaka kósý.. borðað og setið úti í veðurblíðunni.. ekki slæmt það!!!!
en já... mesta afrek helgarinnar... setti í tvær þvottavélar í kvöld og as we speak eru vinnubuxurnar að veltast um í þurrkaranum.... já kellingin er víst orðin fullorðin!!!!!
jæja jæja.. búin að vera netlaus hér heima í þrjá heila daga og komin með þvílík fráhvarfseinkenni... er reyndar með netið í vinnunni en ekki beint mikill tími til að tjá sig hér á netinu... en well.. enn önnur vika búin og ýmislegt gerst.. fór á fínt djamm á sunnudagskvöldinu og er þar með upphitun fyrir þjóðhátíð lokið.. gellan getur sko vel djammað þrjú kvöld í röð!! hehe.. en já.. það verður sko skellt sér til eyja í fyrsta skiptið og meira að segja búin að panta far með herjólfi og er með gistingu og alle sammen... jíhhahaa... hvað það verður gaman...
en já.. vikan er búin að fljóta framhjá mér með vinnu og litlum svefn... verð að læra að fara að fyrra að sofa... en þetta eru svona helstu atriði vikunnar:
vídeóstemmning í 102 eftir erfiða helgi... down with love með goðinu... grrr
bíó á the day after tomorrow... drulluflott og ágætis afþreying
grill & pottastemmning hjá dröfn.... mmmmm
ragnheiður kom færandi með þetta fína kolagrill... á þó eftir að setja það saman
og highlight vikunnar... dadddaraa.... fjárfesti í NOKIA 3200... vei vei vei... þarf ekki lengur að burðast með tíkallasímann... hehehehehe c";)